Íþróttafélagið Ísafold
Myndir
Klukkan
Dagsetning
21. mars 2010
27.11.2006 12:17:13 / ÓliS

Bolti

Það verður bolti sunnudaginn 3 des kl 12:00 við hliðiná raskinum ef veður leifir

kveðja Óli

» 9 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 08:41:58 / ÓliS

bolti

hverjir eru til í bolta á sunnud kl 12:00 á litla grasinu hjá raskinum? ég er til ef að 8 eða fleirri skrá sig.  það er spáð ágætis veðri

kveðja Óli

» 10 hafa sagt sína skoðun

10.11.2006 11:15:27 / Mundi

Paintball

Sælir

Þeir sem ætla að mæta í paintball kl 13:50 eru: Mundi, Gústi, Einar, Óli, Palli, Arnar, Baldur, Jón, Haukur, Bóas, Gummi, Teddi, Finnur + 1, Frikki, Ívar og Oddur. 

Gústi ætlar að taka Raskara og Gumma.  Hinir verða að hafa samband við Munda eða Frikka ef þeir vilja fá far á staðinn. 

Vil benda á að það er enn hægt að komast með því Odense paintball var tilkynnt um 15-20 stk.

Mundi


» 8 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 20:21:45 / Gústi

SALURINN

Strákar!!

Við ætlum að hittast í kjallarasalnum á J.B. Winslow kollegie-inu.  Bara að það sé á hreinu...

PARTY ON GARTH-----PARTY ON WAYNE----PARTY ON ISAFOLD 


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 13:38:57 / Gústi

LOKAHÓFLOKAHÓF LOKAHÓF LOKAHÓF LOKAHÓF

LOKAHÓF ÍSAFOLDAR

Laugardaginn 11.11.06

 

PAINTBALL

Stríðið hefst kl. 13.50 þar sem að leikmenn geta nú hefnt sín á þjálfurum fyrir hitt og þetta á lokuðum stríðsvelli

ODENSE PAINTBALL

Bladstrupvej 243
5270 Odense N

(þeir sem koma á bíl eru beðnir um að láta vita um pláss svo að það sé hægt að smala saman og mæta í halarófu í stríðið)

VERÐIÐ ER 180 d.kr.

 

PARTÝ

Verður haldið í sal J.B. Winslow kollegie

(Þetta sem er við hliðina á spítalanum á Sdr. Boulivard)

Húsið opnar kl. 20.06

Bjór og skot verða á boðstólnum,

annað koma menn með sjálfir.

VERÐIÐ ER: 50 d.kr.

 

Sjáumst hressir og kátir


» 18 hafa sagt sína skoðun

03.11.2006 07:57:28 / Mundi

Leikjapistill

Leikur gegn Korup

 

Lokaleikur tímabilsins var spilaður gegn Korup á heimavelli þann 29 október.  Liðið skipuðu þeir Einar keeper með varnarlínu skipaða þeim Kalla, Frikka, Óla og Gústa.  Miðjan var með þá Bóas, Gumma, Baldur, Jónsa og Arnar með Munda einann frammi.  Á bekknum sátu síðan Haukur og Palli.  Leikmenn Korup voru eitthvað seinir að vakna og náu ekki að hita upp fyrir leikinn og það sást fljótlega á leik þeirra.  Illa skipulögð vörnin og þá sérstaklega í hornspyrnum var leikinn grátt af okkar mönnum.  Óli skoraði með snúningi í teignum a la Mark Hughes eftir 5 mín og aðeins 3 mín seinna setti Mundi annað eftir að hafa staðið af sér tæklingu í teignum.  Mundi var svo aftur á ferðinni eftir 15 mín með skalla eftir hornspyrnu.

            Með stöðuna 3-0 voru menn passívir og stóluðu á skyndisóknir.  Þrátt fyrir að vera mikið með boltann áttu Korup menn erfitt með að koma sér í góð færi og vor hættulegustu atriðin frá þeim langskot sem Einar átti ekki í vandræðum með og einnig var Einar sérlega grimmur í að góma fyrirgjafir sem gerði það að verkum að hinir stóru leikmenn Korup fengu úr litlu að moða.  Varnarlínann stóð sig einnig mjög vel í að halda þeim frá færum og var sérstaklega ánægjulegt að sjá Frikka í hafsentinum.  Í upphafi seinni hálfleiks gerðu Korupmenn nokkra atlögu að markinu en ekkert gekk og eftir að hafa látið Frikka verja frá sér á marklínu misstu þeir nánast móðinn.  Mundi fékk góða stungusendingu innfyrir vörnina og setti sitt þriðja og liðsins fjórða og lokahnútinn batt síðan Jónsi þegar hann fylgdi á eftir þegar markmaður Korup varði vel frá Munda.  Gott mark í lokaleiknum hjá Jónsa.  Semsagt mikill baráttusigur þar sem allir lögðu sig fram og stóðu sig vel.  Gummi og Baldur unnu mikla varnarvinnu á miðjunni og þrátt fyrir þynnku voru Haukur og Bóas sæmilega sprækir.  Arnar og Palli börðust vel og til fregna má teljast að Gústi spilaði 90 mín á fullu gasi.  Eftir leikinn voru margir tilkallaðir til nafnbótarinnar maður leiksins en þeir sem fengu atkvæði voru Einar Mundi Frikki og Óli og urðu Mundi og Einar jafnir að atkvæðum og deildu því heiðrinum.  Það var því ánægjulegur endir á tímabilinu og nú líður að lokahófi sem fram fer um næstu helgi.

 

Le cap

 

 

 

Markaskorun 2006 dreifðist eftirfarandi

 

Guðmundur R. Björnsson                                   16

Jón Eiríksson                                                    10

Davíð Ólafsson                                                   7

Oddur H. Björnsson                                            3

Finnur Örn Þórðarson                                         3

Hjalti Sigurðarson                                               2

Guðmundur Magnús Guðlaugsson                       1

Bóas Eiríksson                                                  1

Ólafur Snæbjörnsson                                          1

Ingimar                                                              1

Haraldur Hilmarsson                                           1

Axel                                                                  1

Óskar                                                                1

Krummi Eiríksson                                               1

 


» 4 hafa sagt sína skoðun