|
30.03.2006 14:32:34 / Mundi
Sælir guttar
Þar sem ég keyri í leikinn á eftir er möguleiki á að kippa þeim
sem búa í suðurhluta Odense með. Jónsi er búinn að panta eitt
sæti og eru því allt að 3 sæti laus. Vinsamlegast kommentið
fyrir neðan eða hringið í síma 2639-5082.
Kveðja
Mundi
»
28.03.2006 20:48:16 / axel
Jamm var að fá tilboð í æfingaleik fimmtudaginn 30. Mars klukkan
20:15 og kæmi hann í staðinn fyrir æfinguna.
Það væri gamann að menn létu vita hvort þeir komist eða vilju taka
leik.
Kveðja Axel Rúnar
ps. ég er maður í leik þarna þetta er á móti DSIO
»
27.03.2006 15:11:41 / axel
Jú dreingir það er æfing á morgun þriðjudag klukkan 19:00 og er
búist við margmenni, þar sem hitamet hafa verið sleginn landið
þvert og endilang. Allavega miðað við síðustu vikur. Hlakka til að
sjá ykkur og svo endilega dragið alla þá sem þið getið út í bolta
því það er svo gamana að leika sér.
Kveðja Sjóarinn
»
25.03.2006 17:04:45 / axel
Já ég vil bara auglýsa þetta aðeins meira. Ég fékk mér sjálfur 2 kg
af ýsu og var þetta mjög fínn fiskur, roðlaus og var ekkert bein
allavega í mínum pakka. En svo veit ég að Ágúst fékk sér lamb, veit
raindar ekki hvort hann sé búinn að smakka það en það væri gaman að
heyra hvað hann hefði að segja um málið.
En emailinn er allavega " icekost@t-online.de "
Og svo er að láta alla sem þið þekkið vita !!!!
Kveðja Axel Rúnar
»
22.03.2006 13:27:10 / axel
Jamm það verður æfing núna á fimmtudaginn, það væri gaman að sjá
svona marga einsog síðast, það vor 11 mættir og var æfingi létt og
skemtileg.
æfinginn hefst klukkan 19:00 á mölinni við campus, það er enginn
klaki á mölinni og ekki nein stór grjót heldur.
Flestir sem mættu á þriðjudaginn sögðust koma á fimmtudaginn og
gaman væri að sjá þá sem ekki komu á þriðjudaginn á
fimmtudagsæfingunni.
kveðja Axel Rúna
ps. kvittið í komentið
»
21.03.2006 12:27:02 / axel
Já fyrir nokkru síðan bankaði maður uppá hjá mér sem var að selja
íslenska fisk (ýsu, þosk, ufsa og rækjur), lambalæri og hann er
stundum með harðfisk. Þessi maður býr í þýskalandi og segist geta
komið til Odense með vörur einusinni til tvisvar í mánuði fer eftir
eftirspurn.
En allavega ég bauðst til að auglýsa emilið hjá honum hér á netinu
svo menn gætu sent honum mail og skráð sig á email listann hjá
honum. Hann er með góðar stærðir á þessu hjá sér ekki 9 kg blokkir,
heldur td. ýsan í 2 kg sem er mun betra fyrir smærri
fjölskildur.
Já og svo er það rúsínan í pylsuendanum, hann ætlar að styrkja
fótboltann um 5% af allri sölu sinni í Odense svo það er umm að
gera að kaupa sem mest af honum hehe. Og svo endilega látið þetta
berast !!!!!
hér kemur emillinn icekost@t-online.de og hann heitir Pétur
Albertsson
Kveðja Axel Rúnar Eyþórsson
»
20.03.2006 10:06:42 / axel
Já það verður æfing á morgun þriðjudag þann 21. Mars klukkan 19:00
er búist við fjölmenni þar sem það er farið að hlína í veðri og eru
þá ekki margar afsakanir eftir  en allavega þá kvetj ég alla þá
sem ætla að mæta að kommenta hér undir.
Kveðja Axel Rúnar
»
08.03.2006 11:28:40 / axel
Jamm þá er búið að setja á fyrsta æfingaleik þessa tímabils og
verður hann laugardaginn 11. mars klukkan 15:00 á vellinum sem við
æfum á. Þar sem það hafa ekki verið margir á æfingum uppá síðkastið
vil ég biðja ALLA þá sem sjá sér fært að mæta að skrá sig hérna að
neðan svo við sjáum hvursu margir komast í leikinn.
Því fleiri því betra þar sem við erum ekki í okkar allra besta
formi. En allavega þá væri gott ef þið gætuð sett ykkur á lista og
látið þetta ganga til allra sem þið þekkið og hafa áhuga á að spila
með okkur.
Kveðja Axel Rúnar Eyþórsson
»
02.03.2006 10:08:07 / axel
Ætlaði bara að láta vita að ég kemst ekki á æfingu í kveld, og svo
hafa líka ekki mæt svo margi á fimmtudags æfingarna hingað til svo
það væri gott ef menn létu vita ef þeir koma til að þeir sem eru
ekki vissir viti af því.
Svo sjáumst við á föstudaginn ALLIR saman
Kveðja Axel Rúnar
»
01.03.2006 16:20:26 / axel
Jamm strákar nú fer boltinn að rúlla á fullu aftur svo við höfum
pantað músikhúsið á raskinum til að kalla saman liðið til að drekka
og hafa gaman saman. Hefur verið stefnt að því að mæta um 8 leitið
á föstudaginn og kvet ég alla sem hafa hugsað sér að spila með
okkur að mæta, þó þeir komist ekki á fillerí þá allavega að kíkja
snemma því við viljum helst halda smá fund.
Já og endilega takið alla þá með ykkur sem vilja mæta svo þetta
verði fjölment og gott partý. Og ekki mundi skemma ef þið
staðfestið mætingu hérna fyrir neða.
Kveðja Axel Rúnar
ps. Það verður ekkert áfengi á svæðinu svi þið komið með það
sjálf.
»
|